Veitingahúsið Gamla fjósið er staðsett að Hvassafelli undir Eyjafjöllum og stendur undir hinu stórbrotna Steinafjalli sem gnæfir yfir byggðina og er rekið af fjölskyldunni á Hvassafelli. Eftir gosið í Eyjafjallajökli 2010 jókst ferðamannastraumur í sveitinni og var tekin sú ákvörðun að rífa út úr gömlu fjósi sem staðið hafði ónotað í 10 ár og breyta því í veitingastað.
Á Hvassafelli er mjólkurframleiðsla með um 70 mjólkandi kúm sem lifa á grasi og korni sem er ræktað á bænum. Kálfar sem fæðast á bænum eru því margir og verða kvígur að mjólkurkúm en nautin að dýrindis steikum og öðru góðgæti sem finna má á matseðil veitingastaðarins.Áhersla okkar er á góða og persónulega þjónustu og bjóða upp á ljúfenga rétti úr besta fáanlega hráefni sem við ræktum sjálf eða fáum úr næsta nágrenni. Uppistaðan á matseðlinum er nautakjöt sem framleitt er á bænum.
Gamla Fjósið
Hvassafell
861 Hvolsvöllur
Sími: 487-7788
gamlafjosid@gamlafjosid.is
www.gamlafjosid.is
11 – 21 alla daga
Gamla fjósið er fjölskyldurekinn staður. Heiða Björg Scheving húsfreyja á Hvassafelli hefur yfirumsjón með rekstri staðarinns á meðan bóndinn á bænum, Páll Magnús Pálsson, sér um búverkin og ræktar afurðirnar sem fylla svo ljúfengan matseðilinn.
Starfslið staðarinns samanstendur af samheldnum hóp sem lifir eins og ein stór fjölskylda á bænum yfir sumarmánuðina. Þannig skapast stórkostlegur starfsandi sem smitar útfrá sér og skapar einstaka stemningu á staðnum.
Hér er matseðill Gamla fjóssins.
Við leggjum metnað okkar í að því að bjóða uppá ferskt hráefni úr heimabyggð.
Matseðill / menu
This message is only visible to admins.
Problem displaying Facebook posts.
Click to show errorError: An access token is required to request this resource.
Type: OAuthException
Solution: See here for how to solve this error
Gamla fjósið er staðsett á Steinum undir Eyjafjöllum.
Akstur frá Hvolsvelli tekur uþb 30 mín.
Aðeins 5 mín frá Þorvaldseyri.
11 - 21 alla daga